Hvort sem það er eftir góðan og frískandi göngutúr eða eftir rölt niður Skólavörðustíginn á aðventunni, þá jafnast ekkert á við að koma inn í hlýjuna heima og fá sér heitt súkkulaði.
Hér er að finna klassíska útgáfu af heitu súkkulaði með örlitlu kollagen tvisti, sem mun vonandi koma þér í þitt allra besta jólaskap.
Hráefni:
- 2 1/2 dl mjólk eða rjómi
- 35gr Síríus Konsum súkkulaði
- 1/4 tsk kanill
- Ein matskeið Amino Marine Collagen frá Feel Iceland
- Nokkrir litlir sykurpúðar til skreytingar
- Þeyttur rjómi, karmellu- og súkkulaðisýróp eftir smekk til skreytingar
Leiðbeiningar:
Hitaðu mjólkina að suðu, bættu súkkulaðinu í bitum út í og hrærðu.
Taktu af hitanum og leyfðu súkkulaðinu að blandast mjólkinni.
Bættu kollageninu og kanil út í og hrærðu. Berðu fram með sykurpúðum, rjóma og sýrópi eftir smekk!