Hér höfum við ljúffengan og hressandi jóladrykk, sem er svo fullkominn fyrir hátíðirnar! Og það besta við hann – þú getur líka gert þetta að áfengum drykk fyrir fullorðna fólkið 😉
HRÁEFNI:
– 1 lítri engifer öl (Ginger ale)
– 2 bollar ananasafi – 2 matskeiðar Feel Iceland Amino Marine kollagen
– 1 bolli trönuberjasafi
– 1/2 bolli fersk trönuber
– appelsína,sítróna og lime þunnt skornar sneiðar
LEIÐBEININGAR:
Hrærið saman engifer öli, ananas- og trönuberjasafanum í stórri könnu.
Skreytið svo með ferskum trönuberjum, appelsínu-, sítrónu- og lime sneiðum.
Njótið!